- Auglýsing -
Hljómsveitin Dymbrá gar út samnefnda smáskífu föstudaginn 12. júní.
„Við erum þrjár í hljómsveitinni, allar í menntaskóla, og höfum spilað saman síðan 2018, tókum til dæmis þátt í Músíktilraunum, þá undir nafninu Umbra,“ segir Eir, einn meðlimur sveitarinnar.
Dymbrá spilar frekar tilraunakennda tónlist sem blandar saman rafmagnshljóðum, hefðbundnum popp-hljóðfærum, klassískum hljóðfærum og öðru, til dæmis flösku. Hægt er að hlusta á smáskífuna á Albumm.is.