- Auglýsing -
ORÐIN HLJÓÐ er yfirskrift Tónlistarhátíðar Rásar 1 sem haldin verður í Norðurljósasal Hörpu í kvöld, laugardaginn 23. nóvember klukkan 16 og er útvarpað í beinni á Rás 1. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin en listrænn stjórnandi hennar í ár er Daníel Bjarnason.