- Auglýsing -
Íslenska hljómsveitin Of Monsters And Men sendi frá sér sína þriðju breiðskífu, Fever Dream, á föstudaginn.
Nýja platan inniheldur 11 lög. Plötuumslagið er unnið í samstarfi við íslenska listamanninn Jón Sæmund en hann hefur starfrækt merkið DEAD um áraraðir.
Hægt er að nálgast Fever Dream í öllum betri plötubúðum og á streymisveitum.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Alligator af nýju plötunni.
Sjá einnig: Sjáðu Of Monsters and Men hjá Jimmy Fallon í gær