Hljómsveitin Captain Syrup sendi frá sér sína þriðju plötu á dögunum en hún ber heitið Eyrarland. Platan inniheldur níu lög og var öll tekin upp síðastliðið sumar.
Rapparinn Elli Grill kemur fyrir í einu lagi á plötunni, Sumar á Sýru, en að sögn hljómsveitarmeðlima sparkaði hann upp hurðinni á stúdíóinu og heimtaði að fá að vera með.
Platan verður gefin út í takmörkuðu upplagi á kasettum og vínyl á komandi vikum en hún er komin á allar helstu streymisveitur. Eyrarland er tekin upp af Ísak Erni Guðmundssyni, Axel Flex Arnason annaðist mix og masteringu og Björn Heimir Önundarson sá um hönnun og teikninguna á plötuumslaginu.
Hlustaðu á Sumar á sýru hér:
Captain Syrup. Mynd / Eydís Klara