- Auglýsing -
Silja Rós heldur tónleika og frumsýnir tónlistarmyndband við lagið All I Can See í kvöld, 9. ágúst, á Loft Hostel.
Fyrr í vikunni kom út myndband við lagið All I Can See með tónlistarkonunni Silju Rós. Í tilefni af því heldur Silja Rós tónleika og frumsýningarpartí á Loft Hostel í kvöld, föstudagskvöldið 9. ágúst.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og er frítt inn. Gítarleikarinn Magnús Dagsson, sem sá um gerð All I Can See, kemur líka fram.
Þess má geta að það var Katla Líndal sem gerði myndbandið við lagið.
Sjá einnig: Alveg hægt að sinna tónlist samhliða leiklist