Landsliðskokkar héldu til Akureyrar árið 2005 vegna matarsýningar en rötuðu í fréttirnar vegna áfengisdrykkju og áfloga.
Það var greint frá því árið 2005 í DV að mikið fyllirí hafi verið á kokkum sem tóku þátt matarsýningunni Maturinn 2005. Ekki nóg með að það hafi verið mikil drykkja þá voru hópslagsmál við Hótel Norðurland og voru þá tveir kokkar handteknir í framhaldi þess. Einnig fannst lítið magn eiturlyfja inn á einu herbergi á hótelinu.
Það er leiðinlegt að leggja allt þetta á sig til að halda glæsilega sýningu og frétta síðan af einhverju svona,“ sagði Friðrik Karlsson, sýningarstjóri Matarins 2005. „Þetta eru landsliðsmenn í matreiðslu og ég held að fólk myndi reka upp stór augu ef landsliðsmenn í fótbolta myndu hegða sér svona. Þetta er svartur blettur fyrir okkur sem að þessu móti stóðum. Ég get ekki annað en litið á þetta sem móðgun,“ segir Friðrik.
Sigurvegari sýningarinnar og matreiðslumeistari ársins 2005, Þórarinn Eggertsson, neitar að hafa verið hluti af hópnum sem tók þátt í ruglinu. „Ég veit bara að þessir menn voru ekki með tíu efstu mönnum á mótinu,“ sagði hann í samtali við DV.
Mikil umræða skapaðist í spjallþræði kokka á Íslandi á netinu í framhaldi þess að sögur af Akureyri fór að berast um kokkaheiminn.
„Það var reyndar einn einstaklingur sem var til vandræða.“ sagði Einar Geirsson á Kaffi Karólínu en hann henti einum kokki út af staðnum