Erlendur karlmaður sem hugðist flytja bát sinn til Reykjavíkur frá Hafnarfirði, einn síns liðs, fannst á reki í Hafnarfjarðarhöfn.
Í september 1975 sagði glænýtt dagblað að nafni Dagblaðið, frá sorglegum atburði en þann 8. september fannst bátur á reki við Hafnarfjarðarhöfn en eigandinn, sem var 66 ára gamall og af erlendu bergi brotinn, hafði tilkynnt að hann ætlaði sér að leggja af stað til Reykjavíkur þann morguninn. Báturinn var enn í gangi þegar hann fannst en stuttu síðar fannst lík mannsins á reki í höfninni. Talið var að maðurinn hafi fallið frá borði en nokkuð slæmt veður hafði verið um morguninn.
Hér má lesa frétt Dagblaðsins í heild sinni:
Fannst látinn í Hafnarfjarðarhöfn
Maður fórst i Hafnarfjarðarhöfn i gær, er hann varð viðskila við bát sinn þar i höfninni. Hann hafði ætlað að flytja bátinn inn til Reykjavíkur, var einn á ferð og er ekki fullljóst, hvernig slysið bar að höndum. Maður þessi, sem fæddur er 1909 og af erlendu bergi brotinn, tilkynnti Hannesi Hafstein hjá Slysavarnafélagi Íslands, að hann hygðist leggja af stað til Reykjavikur klukkan kortér fyrir ellefu. Svo var um samið, að hann léti vita af sér, er hann kæmi til Reykjavíkur. Klukkan rúmlega hálf tólf var lögreglunni i Hafnarfirði tilkynnt að bátur væri á reki i höfninni. Það reyndist vera bátur mannsins, og hafði hann rekið yfir að vestari hafnargarðinum. Hann var mannlaus, en vélin i gangi. Leit var þegar hafin og slysavarnasveitin i Hafnarfirði kvödd út. Skömmu síðar fannst líkið á reki i höfninni. Helzt er talið, að maðurinn hafi fallið fyrir borð, en veður gekk á með hvössum hryðjum og hált var á botni bátsins, sem er úr plasti.