Frjálsíþróttakappanum Gísla Sigurðssyni brá heldur betur í brún þegar skór sem hann hafði séð á þröskuldinum heima hjá sér á Sauðárkróki, fór að hreyfast.
Í desember árið 1992 vissi Gísli Sigurðsson varla hvað á sig stóð veðrið þegar skór sem hann taldi sig sjá liggja á þröskuldinum á útihurðinni, var alls enginn skór, heldur sprelllifandi minkur.
Og hvað gerði Gísli? Auðvitað greip hann byssu og skotfæri og skaut minkinn á færi.
DV fjallaði um málið þann 11. desember 1992 á eftirfarandi hátt:
Minkurinn í íbúðarhús
-eigandi íbúðarinnar skaut hann á færi
„Ég var nýkominn heim seint um kvöld, fannst hitinn óbærilegur í húsinu og ákvað að hafa útidyrahurðina opna smástund. Skömmu síðar þegar ég leit til dyranna fannst mér eins og væri kominn skór á þröskuldinn og fannst það undarlegt, svo sá ég að þetta hreyfðist og leist ekkert á blikuna,“ sagði Gísli Sigurðsson, frjálsíþróttakappi og læknaritari, en í síðustu viku skaut hann mink við heimili sitt á Króknum eftir nokkurn eltingaleik. „Minkurinn kom síðan inn á mottuna í forstofunni og ætlaði sér greinilega inn. Ég hvæsti á móti honum og minksi sá þá sitt óvænna og hopaði út úr húsinu. Í skyndingu náði ég mér í byssu og skotfæri og ætlaði að sjá hvað verða vildi fyrir utan. Minkurinn fór ekki lengra en út á planið fyrir framan bílskúrinn, sem er upphitað, og virtist forðast að fara í snjóinn. Það var smá eltingaleikur á planinu, hann faldi sig undir bílnum í nokkur skipti og ég rak hann jafnharðan þaðan. Þegar hér var komið ver veiðieðlið komið svo upp í mér að þegar ég náði að hrekja hann að útjaðri plansins hlammaði ég á hann einu skoti. Ég áttaði mig eiginlega ekki fyrr en hvellurinn kvað við, hvað ég hafði eiginlega gert, og klukkan rétt um tólf á miðnætti. Nágrannarnir urðu samt einskis varir,“ sagði Gísli en hann býr í raðhúsi í Raftahlíðinni. Gísli heldur að hér hafi verið á ferðinni búrminkur. Er greinilegt að varasamt getur reynst að hafa útidyr og bílskúrshurðir opnar. Gísli sagðist í fyrravetur hafa séð greinilega slóð eftir mink hringinn í kringum sjúkrahúsið, þann hafi greinilega langað til að komast inn í ylinn.