Brotist var inn í Fisco á Akranesi árið 2003 og tæpu tonni af humri stolið. Sagt er frá því í Morgunblaðinu á sínum tíma að þjófarnir hafa brotið sér leið inn um glugga og í framhaldi þess opnað stórar dyr og ekið inn stórum flutningabíl og hlaðið humrinum í bílinn. Humarinn hafi verið geymdur í kæliklefa og virðast þjófarnir gagngert hafa brotist inn til að stela humrinum vegna þess að önnur verðmæti Fisco voru ekki snert en vinna í fyrirtækinu lá niðri vegna sumarfría starfsmanna. Þá hafi humarinn að mestu verið fullunninn og engar eftirlitsmyndavélar til taks. Sólarhring eftir innbrotið fannst humarinn á nokkuð óvenjulegum stað en lögreglan í Hafnarfirði fann hann í Heiðmörk eftir ábendingu. Humarinn var allur ónýtur og var fargað. Tjónið var metið á þriðju milljón fyrir Fisco. „Það er líkt því að menn hafi þurft að losa sig við þetta í flýti,“ sagði Viðar Stefánsson, lögreglufulltrúi á Akranesi, um málið við Morgunblaðið árið 2003. Jóhannes Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Keflavík, sagði að þjófar væru yfirleitt að selja veitingamönnum vörur eins og humar á undirverði. Hann tók þó fram að veitingahúsaeigendur væru ekkert óheiðarlegri en annað fólk.