Heildarfjöldi staðfestra COVID-19 smita er kominn upp í 1.771 hér á landi. 11 ný smit hafa greinst á síðasta sólarhring. 28 eru á spítala með COVID-19, þar af eru fjórir á gjörgæslu samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Virk smit voru 434 í gær, virk smit voru 460 daginn áður, föstudag.
Í gær voru 246 sýni rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, fimm þeirra reyndust jákvæð. Þá voru 1.425 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær, sex smit greindust í þeim sýnum.
Samkvæmt tölum covid.is hafa 1.382 einstaklingar náð bata eftir að hafa smitast.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar í dag klukkan 14.00.