Á vef Borgarbókasafnsins má nú lesa tólf splunkunýjar smásögur eftir nýja höfunda. Smásögurnar eru afrakstur ritlistarnámskeiðsins Margt smátt, sem fram fór á ritsmíðaverkstæðinu Skrifstofunni á Borgarbókasafninu í Kringlunni nú á vormánuðum.
Leiðbeinandi á námskeiðinu var Sunna Dís Másdóttir, sem jafnframt ritstýrði útgáfunni.
Sögurnar, sem fjalla um allt frá lævíslegri árás torkennilegrar veru til ástarævintýris í búningsklefa sundlaugar, má lesa á vef Borgarbókasafnsins. Þar má jafnframt nálgast sögurnar á rafbókarformi, sem og í pdf-skjali til prentunar.
Þetta er í annað sinn sem Borgarbókasafnið gefur út sögur með þessum hætti, en fyrir jól kom út heftið Smátextar: frá örsögu til útgáfu, með afrakstri ritlistarnámskeiðs um örsögur.