Þúsundir Íslendinga bókuðu tíma í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu eftir COVID-19 sjúkdómnum eftir að opnað var fyrir bókanir í gærkvöldi. Fljótlega þurfti að bæta við tímum vegna mikillar eftirspurnar.
12 þúsund höfðu bókað tíma klukkan níu í morgun og enn er opið fyrir bókanir. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Íslenskrar erfðagreiningar.
Skimanir hófust í Turninum, Smáratorgi 3 í Kópavogi núna klukkan 10. Fólki sem á bókaðan tíma er bent á að nota inngang á fyrstu hæð en þar verður fyrir starfsmaður sem tekur á móti þeim.