- Auglýsing -
„Nægjusemin kemur kannski ekki til af góðu,“segir Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur, í nýjasta tölublaði Mannlífs. Hún nýkomin frá Kúbu, þar sem hún heillaðist af fólkinu, lífinu og matarmenningunni.
„Held að það sé ágætis kennsla að koma hingað og upplifa þetta. Ég veit að þetta kemur ekki til af góðu, en þetta er á einhvern hátt svo lærdómsríkt – að það þarf stundum að spila úr því sem til er,“ bætir hún við.
- Auglýsing -