199 smit af COVID-19 hafa verið staðfest hér á landi. 2149 einstaklingar eru í sóttkví. Flest smitanna hafa greinst á höfuðborgarsvæðinu eða 180 smit.
Á vef utanríkisráðuneytisins eru birtar upplýsingar til Íslendinga sem eru annað hvort á ferðalagi erlendis eða dveljast þar tímabundið og eiga rétt á heilbrigðisþjónustu á Íslandi.
Þar eru Íslendingar sem eru erlendis hvattir til að íhuga heimferð og eru skilaboðunum sérstaklega beint til þeirra sem eru eldri en 60 ára.
Á vef ráðuneytinsins segir: „Ef tvö af eftirfarandi atriðum eiga við þig mæla íslensk stjórnvöld með að þú íhugir heimferð til Íslands: ef þú ert eldri en 60 ára, ef þú ert með undirliggjandi sjúkdóm, ef þú ert fjarri vinum og fjölskyldu, ef þú átt ekki rétt á heilbrigðisþjónustu í landinu þar sem þú dvelst eða heilbrigðiskerfið þar annar ekki álaginu.“
Í skilaboðunum er vakin athygli á því að fólk sem sýnir sjúkdómseinkenni gæti átt á hættu að vera synjað um innritun í flug og því er óráðlegt að bíða of lengi.
Sóttvarnalæknir hefur meðal annars skilgreint Spán sem svæði með mikla smitáhættu og þeir Íslendingar sem koma þaðan skulu fara í sóttkví í fjórtán daga eftir heimkomu.