Alls sótttu 26um starf hafnarstjóra Faxaflóahafna sf..
Hæfnisnefnd mun nú fara yfir umsóknir og annast viðtöl og annan undirbúningvið ráðningu hafnarstjóra. Þetta kemur fram á vef Faxaflóahafna sf., þar er listi yfir umsækjendur birtur.
Í janúar 2005 tók hafnarfyrirækið Faxaflóahafnir sf., til starfa. Fyrirtækið á og rekur fjórar hafnir, þ.e. Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn. Faxaflóahafnir sf. er sameignarfélag í eigu fimm sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar, Skorradalshrepps og Borgarbyggðar.
Þetta eru þau sem sóttu um stöðuna:
- Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, sjávarútvegsfræðingur og fv. fiskistofustjóri
- Baldur Steinn Helgason, verkefnisstjóri hjá Jónar Transport
- Daði Jóhannesson, framkvæmdastjóri Hringrásar
- Einar Guðmundsson, skipstjóri
- Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Faxaflóahafna
- Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, forstöðumaður hjá Arion banki
- Frans Páll Sigurðsson, framkvæmdastjóri
- Guðmundur Gunnarsson, fv. bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
- Gunnar Tryggvason, aðstoðarhafnarstjóri Faxaflóahafna
- Haukur Óskarsson, framkvæmdastjóri hjá Refskegg ehf.
- Jóhann F. Helgason, framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá PCC BakkiSilicon hf.
- Jón Einar Sverrisson, sviðsstjóri hjá Icelandair
- Kristinn Jón Arnarson, verkefnastjóri hjá Skaginn3X / Skaginn hf
- Kristinn Uni Unason vélfræðingur hjá Ísfélagi Vestmannaeyja
- Kristófer Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Ker eignir og þjónusta
- Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls
- Ólafur William Hand, ráðgjafi hjá Eimskip
- Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar hjá Vegagerðinni
- Páll Hermannsson, framkvæmdastjóri hjá Al-Bahar Kuwait Holding
- Páll Sigvaldason, hópstjóri framleiðslu hjá Völku ehf.
- Reynir Jónsson, sérfræðingur og verkefnastjóri stefnumótunar í umhverfis- og auðlindaráðuneyti
- Róbert Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá RR ráðgjöf
- Sigríður Ingvarsdóttir, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
- Stefán Stefánsson, framkvæmdastjóri verktakasviðs Íslenska gámafélagsins
- Svavar Halldórsson framkvæmdastjóri/ráðgjafi/háskólakennari
- Valdimar Björnsson, fjármálastjóri hjá Arctic Adventures