- Auglýsing -
Covid 19 hefur nú tekið 33 líf hér á landi. Nú síðast í gær lést karlmaður á áttræðisaldri eftir harða baráttu við Covid-19 á Landspítalanum.
Maðurinn hafði legið þungt haldinn á gjörgæslu um þó nokkurn tíma. Hann var fullbólusettur og ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma.
Á aðeins einni og hálfri viku hafa nú þrír Íslendingar þurft að lúta í lægra haldi gegn Covid 19 og alls hafa 33 látist úr sjúkdómnum hér á Íslandi.