Um fjörutíu stöðvum neðanjarðarlestarkerfisins í London hefur verið lokað í tilraun borgaryfirvalda til að hefta útbreiðslu kórónaveirunnar Covid-19. Í tilkynningu frá Transport for London sem birt var í morgun kemur fram að einnig leggist allar næturferðir jarðlestanna af og dregið verði úr strætóferðum.
Sadiq Khan, borgarstjóri London, sagði að fólk ætti ekki að vera á ferðinni og varaði við því að búast mætti við að enn frekar yrði dregið úr þjónustunni á næstunni.
Aðgerðirnar koma í kjölfar þess að Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, upplýsti í gær að veiran dreifðist mun hraðar um London en aðra staði landsins. Samkvæmt upplýsingum stjórnvalda hafa um 900 tilfelli af Covid-19 verið greind í London og þrjátíu og fjórir hafa látist af völdum sjúkdómsins.
Fyrr í vikunni hafði forsætisráðherrann hvatt fólk til að vinna heima, ef mögulegt væri, og forðast bari, krár og veitingahús. Öllum skólum í Bretlandi verður lokað í fyrramálið, föstudaginn 20. mars.
Nánar má lesa um málið á vef BBC.