Staðfest COVID-19 smit hér á landi eru orðin 1.364 talsins samkvæmt nýjustu tölum á covid.is. Greindum smitum hefur fjölgað um 45 á síðasta sólarhring.
335 sýni voru rannsökuð á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær, 40 reyndust jákvæð. Þá voru 930 sýni rannsökuð hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær, fimm þeirra voru jákvæð.
Alls eru 6.300 einstaklingar í sóttkví hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar. Samkvæmt tölum covid.is hafa 309 einstaklingar náð bata eftir að hafa smitast.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan tvö í dag. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, munu fara yfir stöðu mála. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, verður einnig á fundinum í dag.