Á rúmri viku hafa 45.000 einstaklingar skráð sig á póstlista nýja flugfélagsins PLAY. Þeir sem hafa skráð sig á póstlistann fengu tölvupóst fyrr í dag þess efnis að sala flugmiða mun hefjast bráðlega.
Í póstinum mátti einnig finna leiðbeiningar um hvernig fólk getur freistað þess að finna frímiða á vef PLAY en forsvarsmenn flugfélagsins ætla að gefa 1.000 flugmiða þegar sala hefst.
„Þegar við höfum opnað fyrir sölu getur þú farið inn á heimasíðuna okkar www.flyplay.com og bókað flug á undan öllum öðrum. Í bókunarvélinni eru 1.000 frímiðar og það er fyrstur kemur, fyrstur fær,“ segir í fréttabréfinu sem var sent út í dag.
Þá fylgja leiðbeiningar þar sem kemur m.a. fram að frímiðar verða faldir á völdum dagsetningum í bókunarvélinni og tekið er fram að sá sem finnur frímiða á vef PLAY gæti þurft að greiða fullt gjald fyrir flug til baka.
Sjá einnig: PLAY gefur 1.000 flugmiða