Vinningshafinn, eldri kona á leið á eftirlaun, sem vann rúmar 75,5 skattfrjálsar milljónir í EuroJackpot síðasta föstudag hélt í fyrstu að hún hefði unnið 75 þúsund krónur.
Miðann keypti hún í Videómarkaðnum í Hamraborg, Kópavogi.
Á vef Getspár segir að konan hafi látið renna miðanum í gegnum sölukassa til að athuga hvort á honum væri vinningur. Kassinn gaf þá frá sér vinningshljóð og kvittun með vinningsupphæðinni, í fyrstu hélt hún að vinningurinn væri upp á 75 þúsund krónur en þegar afgreiðslumaðurinn sagði henni að líta aftur og enn betur á miðann, varð henni þá ljóst að vinningurinn væri upp á rúmar 75,5 milljónir. „Hún hreinlega bæði missti andann og andlitið af gleði og kom varla upp orði fyrr en heim var komið,“ segir á vef Getspár.
Þar er haft eftir henni að vinningurinn muni koma sér vel, bæði fyrir hana og börnin hennar og hlakki hún nú til að setjast í helgan stein og vera laus við peningaáhyggjur.