82 þúsund mál komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt yfir helstu tölur árið 2019 frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í samantektinni kemur einnig fram að kynferðisbrotum heldur áfram að fjölga og eru tilkynningar 15%fleiri í ár en í fyrra. Fjölgunin er aðallega tilkomin vegna tilkynninga um kynferðislega áreitni og rannsóknar lögreglu á málum er varða kaup á vændi.
1.600 brot voru skráð þar sem ekið var undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Tæplega 990 einstaklingar voru kærðir fyrir þessi brot. Brotum fjölgar um 6% milli ára.
Heilt yfir voru rúmlega 1.720 ökumenn grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana eða fíkniefna á árinu. Slysum þar sem grunur er um akstur undir áhrifum áfengis fækkar milli ára.
Helstu tölur ársins 2019 má skoða hérna.