Í niðurstöðum úr viðhorfskönnun meðal starfsfólks Reykjavíkurborgar kemur fram að 88% starfsfólks er ánægt í starfi. Sama könnun leiddi í ljós að 4,6% svarenda hafa upplifað einhvers konar áreitni frá samstarfsfólki á síðustu 12 mánuðum
Á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að niðurstöður könnunarinnar eru á heildina jákvæðar, að 88% starfsmanna eru ánægðir í starfi. „Þessar niðurstöður sýna að á heildina litið upplifir starfsfólk Reykjavíkurborg sem góðan vinnustað,“ segir í tilkynningu um niðurstöðurnar. Þar kemur fram að niðurstöðurnar verða nýttar til að bæta árangur í mannauðsmálum.
Niðurstöðurnar leiddu þó í ljós að 2,8% svarenda, 132 einstaklingar nánar tiltekið, hafa upplifað einelti frá samstarfsfólki á síðustu 12 mánuðum. 4,6% svarenda höfðu þá upplifað einhvers konar áreitni frá samstarfsfólki á þessu tímabili, flestir þeirra, eða 76%, höfðu upplifað áreitni í orðum en 3,2% höfðu upplifað líkamlega kynferðislega áreitni svo dæmi séu tekin.
Sérstakt vefsvæði hefur verið opnað þar sem hægt er að skoða niðurstöðurnar.
Þess má geta að könnunin náði til 8894 starfsmanna og alls barst 4891 svar, sem gerir 55% svarhlutfall.