Komið er á daginn að á fimmta þúsund manns voru aðstoðuð af björgunarsveitunum um helgina.
Alls voru 633 félagar í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu sem komu þá að 83 björgunaraðgerðum samkvæmt yfirliti frá félaginu.
Á Grindavíkurvegi var mikill þungi; 1200 manns aðstoðuð; 1500 manns voru aðstoðaðir í Reykjanesbæ, auk þess sem eitthvað í kringum 2000 farþegar – sem voru strandaglópar í Leifsstöð – voru aðstoðaðir.
Björgunarsveitirnar voru á fullu við að koma heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu; sjúklingum var komið undir læknishendur; tóku einnig þátt í að opna fjöldahjálparstöðvar.
Björgunarsveitir fluttu lífsnauðsynleg lyf til sjúklinga; þá flutti björgunarsveit flutti líffæri sem kom með flugi að utan á Landsspítala.
Einnig aðstoðuðu björgunarsveitir lögreglu, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn að komast leiða sinna.