Meira en 100 mál voru skráð í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á milli 17 í gær og 5 í morgun.
Voru 7 einstaklingar vistaðir í fangagklefa á því tímabili.
Um klukkan fjögur í nótt var tilkynnt um konu í annarlegu ástandi á veitingastað í miðbænum; hún var tekin höndum – grunuð um brot á lögreglusamþykkt; vistuð sökum ástands í fangageymslu.
Hafði lögregla afskipti af að átta ökumönnum í gær sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum vímuefna.
Fórir ökumenn voru stoppaðir eftir að hafa keyrt á yfir 100 kílómetra hraða innanbæjar; Ein bifreiðin var stöðvuð í Ártúnsbrekkunni á 121 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar. Játaði ökumaður brotið; vettvangsskýrsla rituð.
17 ára ökumaður var gómaður á 110 kílómetra hraða á götu þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar. Sterka áfengisstybbu lagði frá vitum ökumanns; áfengismælir lögreglu sýndi þó mælingu undir refsimörkum segir í dagbókinni. Var það mál unnið með aðkomu móður ökumanns; verður tilkynning send til barnaverndar.
Um klukkan eitt í nótt hafði lögregla afskipti af þremur mönnum í Hafnarfirði sem eru grunaðir um vörslu fíkniefna; var vettvangsskýrsla skrifuð og efnin haldlögð.