Hér er það helsta úr dagbók lögreglu frá klukkan 17:00 til klukkan 05:00. Alls eru 65 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu. Listinn er ekki tæmandi.
Stöð 1
Aðili handtekinn í hverfi 101 og vistaður í fangaklefa vegna fjársvika og ölvunar.
Aðili handtekinn í hverfi 108 vegna líkamsárásar og hótana, aðilinn vistaður í fangaklefa.
Aðili handtekinn í hverfi 105 eftir að hafa verið til vandræða á skemmtistað og svo í framhaldi á lögreglustöðinni. Reynt af öllum mætti að leysa málið á lögreglustöðinni en án árangus og maðurinn að lokum vistaður í fangaklefa og á von á kærur fyrir hin ýmsu brot.
Aðili handtekinn vegna sölu fíkniefna í hverfi 108 og einnig var aðilinn að aka undir áhrifum fíkniefna.
Ökumaður sem reyndist undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda stöðvaður í hverfi 108, laus að sýnatöku lokinni.
Stöð 2
Óskað eftir aðstoðar lögreglu í heimahús í hverfi 220 vegna aðila sem var ósjálfbjarga vegna ölvunar, aðilanum komið í háttinn.
Ökumaður sem reyndist undir áhrifum áfengis og fíkniefna stöðvaður í hverfi 220, laus að sýnatöku lokinni.
Ökumaður sem reyndist undir áhrifum áfengis stöðvaður í hverfi 210, laus að sýnatöku lokinni.
Stöð 3
Ökumaður sem reyndist undir áhrifum áfengis og án ökuréttinda stöðvaður í hverfi 111, laus að sýnatöku lokinni.
Ökumaður sem reyndist undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda stöðvaður í hverfi 111, laus að sýnatöku lokinni.
Ökumaður sem reyndist undir áhrifum áfengis stöðvaður í hverfi 109, laus að sýnatöku lokinni.
Stöð 4
Aðili handtekin í hverfi 110 þar sem hann var undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél, maðurinn laus að sýnatöku lokinni.
Ökumaður sem reyndist undir áhrifum áfengis ásamt því að vera sviptur ökuréttindum stöðvaður í hverfi 110.