- Auglýsing -
Maðurinn sem vann 41,8 milljónir í Lottó á laugardaginn ætlar að fjárfesta í fasteign.
Þriggja barna fjölskyldumaður á höfuðborgarsvæðinu vann 41,8 milljónir í Lottó um helgina. Þegar hann heimsótti höfuðstöðvar Íslenskrar getspár sagðist hann hafa „skolfið á beinunum“ þegar hann sá að hann hafði unnið er fram kemur vef lotto.is.
Miðann keypti hann í Lottóappinu, 10 raða sjálfvalsmiða.
Maðurinn mun ætla að nýta vinninginn til að koma sér og fjölskyldu sinni af leigumarkaðinum yfir í eigið húsnæði en það mun vera eitthvað sem hann hefur dreymt um lengi.