Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga fimmtána ára gamalli stúlku með grófum hætti. Samkvæmt ákæru á maðurinn að hafa átt við hana bæði samræði og endaþarmsmök.
Vísir greinir frá þessu og segir að ekki komi fram hvar eða hvenær brotið fór fram, fyrir utan að það hafi verið að næturlagi. Stúlkan fer fram á þrjár milljónir króna í miskabætur.
Það er embætti héraðssaksóknara sem höfðar málið og verður það tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í júní.
Hinum meinta nauðgara er gefið að sök að hafa farið með ungu stúlkuna afsíðis, lokað að þeim og hent henni þar niður á sófa. Þá hafi hann klætt stúlkuna úr og haft við hana samræði, án hennar samþykkis og vilja, og á sama tíma beitt hana ofbeldi með því að toga í hár hennar og klóra bak. Stúlkan hlaut meðal annars eymsli á kynfærum og endaþarmi.