Frumkvöðullinn Alda Karen Hjaltalín selur nú vítamíngúmmíbangsa sem ætlaðir eru börnum. Fyrir hverja selda flöska af böngsum lofar hún að planta tré í Amazon-skógunum.
Fréttablaðið greindi frá og ræddi við Öldu Karen, sem einnig er markþjálfi, um þetta nýja ævintýri hennar. Þar segir hún að brjálað sé að gera hjá henni þar sem hún hafi mörg járn í eldinum. Þrátt fyrir harða gagnrýni á „Ég er nóg“ fyrirlestra markþjálfans virðist engan bilbug á Öldu að finna því hún er með nýjan viðburð í farvatninu. „Ég er að undirbúa annað sem ég mun gera í janúar 2021. Það verður ekki fyrirlestur, heldur svolítið annað, sem ég má ekki upplýsa alveg strax.
Alda Karen hóf störf sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tiger Gummies 1. september síðastliðinn en það framleiðir vítamínnammi handa börnum. Hún er með markaðsstofu í New York og þar hefur hún unnið mikið fyrir félaga sinn að nafni Brandon Webb sem á þó nokkur fyrirtæki í Bandaríkjunum. „Hann réð mig til að sjá um markaðsmálin sín og svo byrjar hann með þetta vítamínfyrirtæki í byrjun 2020 og spyr mig í sumar hvort ég hafi áhuga á að starfa sem framkvæmdastjóri og ég ákvað bara að stökkva til. Þetta er mjög flott verkefni og fyrir hverja flösku sem er seld að þá plöntum við tré í Amazon skóginum,“ sagði Alda í samtali við Fréttablaðið.