- Auglýsing -
Átta einstaklingar hafa greinst í dag með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi. Alls hafa þá 34 smit greinst hér á landi. Þessu er sagt frá á vef Vísis.
Sóttvarnarlæknir staðfesti þetta og segir sjúklingana alla eiga það sameiginlegt að hafa verið í Ítalíu eða Austurríki.
Þess má geta að skíðasvæðinu Ischgl í Austurríki hefur verið bætt á lista yfir skilgreind áhættusvæði vegna COVID-19. Sóttvarnarlæknir ræður frá ónauðsynlegum ferðum til Kína, Suður-Kóreu, Írans, Ítalíu og núna skíðasvæðisins Ischgl í Austurríki.