Tíðindalaust hefur verið af fjallinu Þorbirni á Reykjanesskaga og nágrenni í nótt, að því er fram kemur í upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Náttúruvársérfræðingar hennar fylgjast þó vandlega með öllum hræringum undir honum og umhverfinu þar um kring.
Óvissustig almannavarna var virkjað síðdegis í gær vegna landriss sem hefur verið óvenju hratt vestan megin við fjallið, með tilheyrandi skjálftum. Þykir það vera líkleg vísbending um kvikusöfnun á nokkurra metra dýpi, þótt vísindamenn útiloki ekki að aðrar ástæður geti legið að baki.
Boðað hefur verið til íbúafundar í Grindavík, sem er ekki langt frá Þorbirni, klukkan 16 í dag vegna málsins. Fundurinn kemur til með að fara fram í íþróttahúsi bæjarins. Þar munu vísindamenn frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun gera grein fyrir stöðunni auk fulltrúa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Lesa má nánar um hvaða áhrif landrisið getur haft á veður.is.
Fylgjast má með frekari upplýsingum frá Almannavörnum á Facebook.