- Auglýsing -
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum rannsakar nú andlát þar sem kona á sextugsaldri lést í heimahúsi í Sandgerði.
Andlátið er rannsakað sem sakamál, eins og segir í tilkynningu frá lögreglu.
Karlmaður á sextugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins til 8. apríl.
Samkvæmt tilkynningunni er nú unnið að rannsókn málsins og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.