Andrés Magnússon blaðamaður hefur verið ráðinn fulltrúi ritstjóra við Morgunblaðið frá og með deginum í dag. Greint er frá þessu á mbl.is og þar kemur fram að Andrés hafi hafið störf í blaðamennsku hjá Morgunblaðinu árið 1986 og síðar starfað á Pressunni, Eintaki og síðar DV, auk þess sem hann var leiðbeinandi hjá Prenttæknistofnun.
Fram kemur í fréttinni að hann hafi verið einn stofnenda Kjarnorku, eins af fyrstu veffyrirtækjum á Íslandi, en aftur hafið störf á Morgunblaðinu árið 1996 á nýstofnaðri netdeild Morgunblaðsins og tekið þátt í undirbúningi og uppsetningu fréttavefjar Morgunblaðsins, mbl.is.
Um aldamót réðist hann til Íslenskrar erfðagreiningar og fékkst þar við vefþróun, meðal annars við gerð Íslendingabókar. Hann sneri aftur í blaðamennsku árið 2005 við stofnun Blaðsins en flutti sig yfir til Viðskiptablaðsins 2007, þar sem hann hefur verið við störf síðan, nú síðast sem ritstjórnarfulltrúi, en þar hefur hann meðal annars ritað vikulega fjölmiðlagagnrýni.
Andrés hefur verið búsettur á Englandi undanfarinn áratug en flutti aftur til Íslands í upphafi mánaðar. Hann er 55 ára gamall, sonur Magnúsar Þórðarsonar og Áslaugar Ragnars, sem bæði voru blaðamenn á Morgunblaðinu, en eru nú látin. Hann er kvæntur Auðnu Hödd Jónatansdóttur blaðamanni og eiga þau sex börn.