Það var hrikaleg aðkoma Andra Búa Sæbjörnssonar að bifreið hans á Smiðjuvegi í Kópavogi í morgun. Búið var að stela fokdýrum felgum undan bifreiðinni og stórskemma hann.
„Ef einhver hefur upplýsingar um einhvern sem var að keyra framhjá, eða bara sá eitthvað athugavert fyrir utan Tengi á Smiðjuvegi 76 í nótt á milli 23:00 og til 04:00 má hann endilega senda mér message,“ skrifaði hann á Facebook. Nánari lýsingar á þýfinu er svo að finna í póstinum.
„Þetta eru matt svartar 18″ tommu Skoda Turini felgur með svörtum skoda miðjum á 225/40r18 hankook ventus prime sumardekkjum Ekki nóg með að stela felgunum en þá eru líka bremsudiskarnir ónýtir ásamt því að sílsinn er beyglaður,“ skrifar hann.