„Það er ekkert að mér maður. Ég hef engar leiðinlegar fréttir að færa og er í toppmálum,“ segir Andri Freyr Viðarsson, einn umsjónarmanna Síðdegisútvarpssins á Rás 2. Hann er einn þeirra starfsmanna stöðvarinnar sem nú er í sóttkví og mun fjarstýra þættinum í dag í félagi við Felix Bergsson.
Á laugardaginn greindist starfsmaður Rásar 2 með Covid-19. Í kjölfarið fóru sex starfsmenn RÚV í sóttkví ásamt einhverjum viðmælendum útvarpsstöðvarinnar. Þeirra á meðal er Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn en hann var einmitt í viðtali hjá Andra og félögum í Síðdegisútvarpinu.
„Ég er í sóttkví en vinnandi heima. Ég verð því með þáttinn á eftir ásamt því að Felix Bergsson verður með mér. Það er því miður ekki mér að kenna að Víðir og fleiri eru í sóttkví,“ segir Andri.