Afslættir apóteka til eldri borgara og öryrkja eru mjög misjafnir. Þeir eru á bilinu 0 upp í 10 prósent. Hæstu afslættirnir eru 10 prósent en þeir lægstu þrjú prósent.
Afslátturinn mjög misjafnn
Mjög misjafnt er á milli lyfsala hvort eða hve mikinn afslátt er boðið upp á fyrir eldri borgara og öryrkja. Afslátturinn getur létt undir með þessum hópum sem oft eru með himinháan lyfjakostnað. Það hafa ekki allir möguleika á því að fara í ódýrasta apótekið og verða því að versla sem næst sínu heimili eða við þau apótek sem bjóða upp á heimsendingu.
Gert upp á milli aldraðra og öryrkja
Fimm apótek veita engan afslátt á lausasölulyfjum. Lægsti afslátturinn er þrjú prósent en sá hæsti tíu prósent. Eitt apótek mismunar öryrkjum og gefur þeim fimm prósent afslátt en eldri borgurum tíu prósent. Apótek mættu gera mun betur við þessa hópa.
í töflunni hér að neðan má sjá alla afslætti, bæði á lausasölulyfjum og öðrum vörum.
Apótek: | Afsl eldri borgarar og öryrkjar, lausasölulyf Annað |
Apótekarinn | 3% 5% af vörum |
Apótek Mosfellsbæjar | 10% |
Costco | 0 |
Lyfja | 10% eldrib, 5% öryrkjar |
Lyfjaver | 0 |
Lyfjaval | 6% |
Lyf og heilsa | 5% |
Apótek Garðabæjar | 5% |
Apótek Hafnarfjarðar | 5% |
Íslands Apótek | 10% |
Garðs Apótek | 0 10% af vörum |
Borgar Apótek | 5% |
Efstaleitis apótek | 10% 5% nágranna afsl |
Árbæjarapótek | 10% |
Farmasía | 10% |
Rima Apótek | 0 |
Lyfsalinn | 10% |
Reykjavíkur Apótek | 0 10% af vörum |
Lyfjabúrið | 10% 10% nágranna afsl |