Arnar nokkur íbúi í Grafarvoginum fékk áramótabrennu heim í garðinn til sín. Brennan var þó aldeilis ekki að hans ósk, en kviknað hafði í út frá flugeld og eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi var eldurinn fljótur að breiða úr sér.
Arnar hringdi í Neyðarlínuna og óskaði eftir aðstoð við að slökkva eldinn og var hann þá beðinn um að slökkva hann sjálfur, eftir því er fram kemur í færslu Arnars á Facebook.
Segir hann íbúa hússins hafa farið út með slöngur og skóflur og náð að ráða niðurlögum eldsins. Slökkviliðið kom síðan á staðinn hálftíma síðar.
En eins og fram hefur komið í fréttum loguðu gróðureldar víða um borg á nýársnótt og var allt tiltækt lið Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu á þönum við að sinna öllum útköllunum sem bárust.