Maður var stunginn í kviðinn fyrir utan veitingastaðinn Fjallkonuna í miðbænum, á öðrum tímanum í nótt. Hann var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi með sjúkrabíl. Þar kom í ljós að áverkar mannsins eru mjög alvarlegir. Maðurinn er nú á gjörgæsludeild.
Lögreglan handtók mann í tengslum við málið um klukkan tíu í morgun. Hugsanleg tengsl eru á milli líkamsárásarinnar og bílbruna sem einnig átti sér stað í nótt.
Lögreglan biðlar til þeirra sem gætu hafa orðið vitni af líkamsárásinni að hafa samband í tölvupósti á netfangið [email protected]