Ölvaður ökumaður í Kópavogi missti stjórn á bifreið sinni í nótt með þeim afleiðingum að hann ók ljósastaur og þaðan á aðra bifreið. Hann slapp óskaddaður frá ákeyrslunum en yfirgaf vettvanginn á fæti og hefur líklega viljað forðast lögregluafskipti. Með snarræði sínu fann lögreglan manninn sem var handtekinn, grunaður um ölvun við akstur. Hann var í framhaldinu læstur inni í fangaklefa í þágu rannsóknarinnar. Orkuveitunni var tilkynnt um óhappið.
Annar ökumaður var á keyrslu í miðborginni þegar lögreglan taldi sig sjá að hann væri að tala í síma án handfrjálks búnaðar. Ökumaðurinn neitaði sök en skýrsla rituð um meint afbrot hans. Um svipað leyti hafði lögreglan afskipti af konu í austurborginni sem vildi ekki greiða reikning fyrir leiguakstur.
Laust eftir miðnætti var ung kona í annarlegu ástandi handtekin í miðbænum. Konan er grunuð um líkamsárás og neitaði að gefa lögreglu nafn eða kennitölu. Henni var komið í fangaklefa þar sem hún hvílir þar til nýr dagur rennur og víman runnin af henni.
Laust eftir klukkan eitt í nótt var maður staðinn að því að tálma störf lögreglu og fara ekki að fyrirmælum laganna varða. Maðurinn var færður á lögreglustöð en var síðan látinn laus að lokinni upplýsingatöku.Skömmu síðan var tilkynnt um líkamsárás á svipuðum slóðum. Maður var laminn ítrekað í höfuðið með flösku. Árásaraðilinn var farinn af vettvangi. Sjúkralið á vettvangi skoðaði áverka og taldi ekki þörf á bráðaflutningi. Maðurinn kaus að fara með leigubifreið á slysadeild.