Arnar Grant starfar ekki lengur hjá líkamsræktarstöðinni World Class. Verktakasamningi Arnars hefur verið sagt upp og staðfesti Björn Leifsson, eigandi World Class, þetta í samtali við Vísi í dag.
Þar greindi hann frá því að samningnum hafi endanlega verið sagt upp í fyrradag eftir að þremenningarnir Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson, kærðu Arnar og Vítalíu, fyrr tilraun til fjárkúgunar. Arnar starfaði sem þjálfari í stöð World Class í Vatnsmýri, en sagði Björn að World Class hefði ekki fólk í vinnu sem væri með kæru í ferli. „Við getum ekki verið að láta fyrirtækið dragast inn í þetta, þetta kemur okkur ekkert við,“ sagði Björn. Ekki hefur tekist að ná í Arnar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.