Árni Gils Hjaltason er látinn, á þrítugasta aldursári, en hann fæddist 3. október árið 1992.
DV segir frá andlátinu í dag. Árni var mikið í fréttum síðan árið 2017 vegna dómsmáls en hann var sakfelldur í héraðsdómi fyrir tilraun til manndráps en sýknaður í Landsrétti í fyrra. Margir gagnrýndu, sér í lagi faðir Árna, Hjalti „Úrsus“ Árnason, fyrrum kraftlyftinga- og aflraunamanni, málsmeðferðina í héraði og rannsókn lögreglu. Faðir hans barðist árum saman fyrir réttlæti handa syni sínum og voru skaðabótamál fyrir hönd Árna í uppsiglingu.
Lést Árni undir helgi en nákvæm tímasetning hefur ekki enn komið fram.
Mannlíf sendir aðstandendum og vinum Árna Gils innilega samúðarkveðjur.