- Auglýsing -
Stórleikarinn Aron Már Ólafsson, sem er mun betur þekktur undir nafninu Aron Mola og unnusta hans Hildur Skúladóttir eiga von á öðru barni sínu sem er drengur.
Aron hefur margoft slegið í gegn sem leikari og þykir með þeim efnilegustu hér á landi. Og ekki nóg með það því Hildur útskrifaðist nýlega sem sálfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.
Haustið verður því dásamlegt fyrir þetta fallega par því ófæddi drengurinn er væntanlegur í heiminn í október.
Fyrir eiga þau Aron og Hildur drenginn Birni Blæ, sem er þriggja ára gamall.