Ásdís Jenna Ástráðsdóttir táknmálsfræðingur varð bráðkvödd á heimili sínu í Kópavogi síðastliðinn laugardag. Húnvar 51 árs að aldri og lætur eftir sig eiginmann og 9 ára gamlan son.
Ásdís var fædd 10. janúar 1970. Hún var heyrnarskert og með truflaða vöðvaspennu sem leiddi til þess að hún gat hvorki stjórnað höndum né fótum. Hún þurfti því alla tíð að nota hjólastól. Tækni nútímans gerði henni lífið léttara á marga lund, svo sem að flytja mál sitt á opinberum vettvangi.
Ásdís Jenna lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Síðar lauk hún BA-námi táknmálsfræði við Háskóla Íslands. Þá las hún á sínum tíma fötlunarfræði við HÍ. Síðustu ár var hún svo í námi við lagadeild Háskólans á Bifröst.
Fötlun Ásdísar má rekja til veikinda á barnsaldri og hún segir að læknamistök hafi verið gerð. Hún hefur verið reið og sár vegna þess, en ekki lengur. „Ég hef verið reið í mörg ár,“ segir hún. „En ég hef fyrirgefið læknunum sem gerðu mistök þegar ég var ungbarn. Ég hef sætt mig við fötlun mína.“
Um ævina lét Ásdís Jenna oft og víða til sín heyra, meðal annars um réttindamál fatlaðs fólks hvar hún barðist mjög fyrir úrbótum og skilningi meðal almennings. Hún skrifaði oft greinar í blöð og tímarit, var í viðtölum og um hana var á sínum tíma gerð sjónvarpsmynd.
Þrátt fyrir fötlun sina þekkti Ásdís Jenna ekki uppgjöf og það hvarflaði aldrei að henni að hún geti ekki gert það sem hugur hennar stendur til. „Ég gefst aldrei upp. Ég er þrjósk,“ sagði Ásdís í viðtali við Morgunblaðið.
Eftirlifandi eiginmaður Ásdísar Jennu er Kevin Kristófer Oliversson. Sonur þeirra er Adam Ástráður, sem er níu ára gamall.