Sunnudagur 19. janúar, 2025
0.5 C
Reykjavik

Ásgeir segir Reykjavík kuldalega og sjarmalausa: „Hvað þarf til að yfirvöld vakni?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ásgeir Ásgeirsson, grafískur hönnuður og skiltagerðamaður, skilur illa á hvaða leið höfuðborgin Reykjavík sé og spyr hvort borgin sé að deyja vegna peningagræðgi. Að hans mati hefur borgin glatað sjarma sínum og orðin ansi kuldaleg.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Ásgeirs í Morgunblaðinu. Þar segir hann:

„Það hafa verið rif­in hús sem jafn­vel eru friðuð. Með breyttu skipu­lagi, sem hef­ur verið sveigt í valdi pen­inga gráðugra bygg­ing­ar­verka­taka, geta þeir byggt sín há­hýsi og makað krók­inn. Hvers vegna dett­ur eng­um af þess­um verk­tök­um í hug að byggja eitt­hvað fyr­ir fólk sem hef­ur skoðanir á hvað það vill varðandi út­lit, um­hverfi, leik­velli, þjón­ustu og fjöl­skyldu­vænt um­hverfi en þurfa ekki að kaupa íbúðir í blokk­um með flöt­um þökum sem jafn­vel leka af því að fram­boð er ekki á öðru hús­næði? Hef­ur jafn­vel flutt inn í hálf­kláruð hús að utan með ófrá­geng­inni lóð enda verktakinn of upptekinn við að selja fleiri eignir,“ segir Ásgeir ákveðinn.

Þessu næst vill Ásgeir meina á að mörg fyrirtæki og verslanir hafi verið flæmd í burtu. Hann bendir á hversu mikið af verslunarhúsnæði í borginni standi ýmist tómt eða sé til sölu.

„Gamli bærinn er á hröðu undanhaldi fyrir gráum kössum. Hvað þarf til þess að yfirvöld vakni upp af ljótum draumi og hugsi eitthvað um álit og vilja almennings um hvernig hann vill hafa borgina? Það er of seint að byrgja brunninn eftir að barnið er fallið ofan í. Þolir Reykjavík annað kjörtímabil með Dag B. í forystu,“ spyr Ásgeir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -