Áslaug Arna Sigurbjörnsóttir ráðherra greindi frá því í færslu á Facebook síðu sinni nú fyrir skömmu að hún væri smituð af kórónuveirunni. Áslaug hafði farið í PCR próf af sömu ástæðu og Bjarni Benediktsson, eða vegna ríkisstjórnarfundar og fékk jákvæða niðurstöðu.
„Í gær fór ég einkennalaus í PCR próf vegna ríkisstjórnarfundar og fékk jákvæða niðurstöðu. Nú reynir á mig að hafa það náðugt með sjálfri mér næstu 10 daga. Ljóst er að smitin eru mörg en veikindin sem betur fer fátíðari. Ég vona að sá hópur sem ekki finni fyrir þessum smitum fari stækkandi og á nýju ári getum við farið að horfa til eðlilegri tíma.“
Líkt og Mannlíf greindi frá í gær er Bjarni fjármálaráðherra líka smitaður af Covid 19 og því eru tveir ráðherrar úr leik og verða þau bæði í einangrun yfir áramótin.
Sjá einnig:
Bjarni Ben greindist jákvæður: „Ég er með öllu einkennalaus á þessum tímapunkti“
Mannlíf sendir þeim báðum batakveðjur.