Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, birti færslu á Facebook í gær þar sem hann lagði til að allir bílaeigendur myndu þeyta bílflautur sínar í kvöld í 30 sekúndur, á slaginu 20:00, til að koma þakklæti sínu til heilbrigðisstarsfólks á framfæri.
Hugmyndin virðist ekki hafa fengið góðar viðtökur því Ásmundur hefur eytt færslunni út og birt aðra.
Hann segir upprunalegu færsluna hafa orðið til þess að hann hefur þurft að þola árásir „um óskild mál“. Hann bætir við að gagnrýnisraddirnar koma allar úr sömu átt og „sama flokk“.
Einhverjir hafa þá bent á að hugsunun hafi verið falleg þó að framkvæmdin hefði kannski ekki slegið í gegn.