Héraðsdómari Ástráður Haraldsson hefur verið settur sem ríkissáttasemjari í yfirstandandi vinnudeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.
Hefur stjórn dómstólasýslunnar samþykkt að veita Ástráði leyfi frá dómarastörfum, en þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Kemur fram að með erindi til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, dags. 13. febrúar 2023, óskaði Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari eftir því að víkja í yfirstandandi kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og hefur félags- og vinnumarkaðsráðherra ákveðið að verða við þeirri beiðni.
Aðalsteinn Leifsson gegnir eftir sem áður embætti ríkissáttasemjara, enda munu störf Ástráðs Haraldssonar einvörðungu snúa að ofangreindri vinnudeilu.