Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur samþykkt erindi skrifstofu borgarstjórnar dags. 23. mars 2020, ásamt bréfi Lyfjastofnunar dags. 12. mars 2020 þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um lyfsöluleyfi fyrir nýja lyfjabúð að Grjóthálsi 8.
Umsækjandi er Lyfsalinn ehf., sem er í 50% eigu Magnúsar Ármann athafnamanns. Magnús er einn hluthafa í fjárfestingafélaginu Stoðir, áður FL Group sem var áður stærsti eigandi Glitnis. Magnús hefur verið áberandi og umsvifamikill í íslensku viðskiptalífi í fjölda ára. Kristján M. Gunnarsson á einnig hlut í Lyfsalanum, en hann á einnig stóran hlut í Frumherja og KEA hótelum.
Söluturninn Kvikk and co er einnig á Grjóthálsi 8, en fasteignin er í eigu Skeljungs, sem sótt hefur um leyfi til breytinga á henni.
Magnús og eiginkona hans keyptu í byrjun árs eitt dýrasta einbýlishús Garðabæjar og greiddu 360 milljónir fyrir það.
Sjá einnig: Borguðu 360 milljónir fyrir Garðabæjarhöllina