Suðvestanáttin allsráðandi hjá okkur næstu daga. Yfirleitt frostlaust að deginum og ætti sólin að hafa nokkurn vegin undan að bræða þau él sem koma í dag, en í kvöld bætir í vind og élin verða kröftugri. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.
Það segir að þá muni sólin vart að hafa undan og dálítil föl gæti myndast þar sem orðið er snjólétt, eins og allvíða á Suður- og Suðvesturlandi. Ekki eru líkur á að snjó taki upp annars staðar fyrr en um helgi þegar von er á hlýrra lofti úr vestri. Hins vegar er suðvestanáttin nánast þurr og allvíða léttskýjað norðaustanlands og á Austurlandi.
Áfram svipuð dægursveifla í hitanum, en hiti gæti náð 4 til 5 stigum yfir daginn en um og undir frostmarki að næturlagi.