Banaslys varð í nótt er flutningabíll valt á Suðurlandsvegi, austan við Kirkjubæjarklaustuur í af ofsaroki. Lögreglan á Suðurlandi tilkynnti þetta í morgun.
Samkvæmt Rúv varð slysið um klukkan eitt í nótt en ökumaður flutningabílsins slapp ómeiddur en farþegi hans lést.
Slíkt var aftakaveðrið á slysstað er viðbragðsaðilar komu á svæðið að rúður sprungu á björgunartækjum. Aðeins voru björgunarstörf unnin á staðnum en bílinn skilinn eftir þar til veðrinu slotar.
Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa eru á svæðinu.