- Auglýsing -
Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi í gær en þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni nú í morgun. Slysið átti sér stað á mótum Lækjargötu og Vonarstrætis á öðrum tímanum eftir hádegi í gær.
„Þar varð árekstur sendibifreiðar og vinnuvélar/lyftara, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 13.23.
Ökumaður bifreiðarinnar var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins,“ segir þá einnig í tilkynningunni.